Fyrsta stuðningsmannakvöld ársins á fimmtudagskvöld |
Héðinn Ólafsson Mán, 16. janúar 2012 |
|
Fimmtudagskvöldið 19. janúar kl. 20:00 verður haldið fyrsta stuðningsmannakvöld ársins hjá Mafíunni. Til stendur að kynna hugmyndir um breytingar hjá Mafíunni, en hugmyndir eru um að gera félagsskapinn formlegri með útgáfu félagsskírteina. Þannig að það má líta á þetta sem "stofnfund" Mafíunnar. Við skorum við á alla þá sem áhuga hafa, að koma og gefa kost á sér til starfa fyrir Mafíuna. Ef nógu margir gefa kost á sér verður kosið í stjórn Mafíunnar, en annars situr núverandi stjórn áfram.
Jón Rúnar Halldórsson formaður knattspyrnudeildar mun koma og sitja fyrir svörum og hvetjum við alla þá sem hafa eitthvað við starf hans og stjórnarinnar að athuga, að mæta og koma sínu á framfæri.
Við vonumst að sjálfsögðu eftir að sjá sem flesta, en á boðstólnum verður bjór á sama góða FH verðinu. Áfram FH!
|