Atli Guðnason skrifar undir nýjan 2 ára samning. |
Jónas Ýmir Jónasson Fös, 14. október 2011 |
|
Sóknarmaðurinn snjalli Atli Guðnason hefur skrifað undir nýjan samning við FH. Samningur Atla er til tveggja ára en Atli hefur verið lykilmaður í FH liðinu undanfarin ár. Hann er uppalinn hjá félaginu og hefur verið fastamaður í liðinu eftir að Heimir Guðjónsson tók við FH árið 2008. Tímabilið 2009 var hann valinn besti leikmaður Íslandsmótsins en það tímabil skoraði Atli 10 mörk. Hann glímdi við töluverð meiðsli í fyrra en átti frábæra leiki með liðinu nú seinni partinn á tímabilinu.
Frábærar fréttir fyrir Fimleikafélagið.
|