Aðstoðarþjálfari ráðinn |
Árni Rúnar Karlsson Mán, 10. október 2011 |
|
Guðlaugur Baldursson er næsti aðstoðarþjálfari mfl. karla hjá FH.
Guðlaugur mun jafnframt vinna náið með Ingvari Jónssyni þjálfara 2. flokks karla, sem þó verður eftir sem áður aðalþjálfari 2. flokks karla.
Guðlaugur þjálfaði ÍBV árið 2006, honum var sagt upp störfum rétt undir lok tímabils. ÍBV féll það árið niður í 1. deild. Guðlaugur var ráðinn þjálfari 1. deildarliðsins ÍR árið 2008. 2011 var liðið í fallbaráttu og endaði í 9. sæti.
Guðlaugur hefur einnig komið að knattspyrnuakademíu FH undanfarin ár.
|