Fim 10.jún 2004
Viðtal við Guðmund Sævarsson
Við fengum góðfúslegt leyfi hjá þeim á fótbolta.net til að birta viðtal við Gumma Sævars sem þeir tóku.
Fullt nafn: Guðmundur Sævarsson
Gælunafn: Gummi, Gvendur, stundum kallaður Refurinn
Aldur: 25 ára
Giftur/sambúð: Í sambúð með Helenu Björk Jónasdóttur
Börn: Embla, 2ja mánaða
Hvað eldaðir þú síðast? Pasta með ólívum, parmesan og einhverju sulli
Hvað vilt þú fá á pizzuna þína? sveppi, papriku, lauk, aukaost
Hvernig gemsa áttu? Nokia ????
Uppáhaldssjónvarpsefni? Boltinn, raunveruleikasjónvarpsþættir, annars er ég svo mikill glápari að það er erfitt að velja á milli
Besta bíómyndin? Kill Bill var að koma sterk inn, Pulp Fiction, Goodfellas
Hvaða tónlist hlustar þú á? Alæta, annars eru Outkast flottir þessa dagana
Uppáhaldsútvarpsstöð? Skonrokk
Uppáhaldsdrykkur? ískalt klakavatn
Uppáhaldsvefsíða? this.is/fh
Ertu hjátrúarfullur fyrir leiki (ef já, hvernig þá?)? Nei
Hvernig er best að pirra andstæðinginn? Klobbinn fer oft illa í menn
Hvaða liði myndir þú aldrei spila með? Aldrei að segja aldrei
Hvert var átrúnaðargoð þitt á yngri árum? Kókaínhausinn (Maradona)
Erfiðasti andstæðingur? Gunnlaugur Jónsson er erfiður viðureignar
EKKI erfiðasti andstæðingur? Leifur Garðars í reit
Besti samherjinn? Heimir Guðjóns er alltaf traustur
Sætasti sigurinn? 7-0 sigurinn á KR var sætur
Mestu vonbrigði? Það var sárt að sjá eftir bikarnum til Skagamanna í fyrra
Uppáhalds lið í enska boltanum? Liverpool
Uppáhaldsknattspyrnumaður? Ronaldinho, Kaká hjá AcMilan er líka allt í lagi
Besti íslenski knattspyrnumaðurinn fyrr og síðar? Eiður Smári
Efnilegasti knattspyrnumaður landsins? Sverrir buff gæti náð langt
Fallegasti knattspyrnumaðurinn í deildinni? Pass, en það er einn rauðhærður sem er að gera það gott í auglýsingabransanum, hann er ansi laglegur
Fallegasta knattspyrnukonan? Hildur Sævars, hún er farin að sprikla aftur
Grófasti leikmaður deildarinnar? Stefán Þórðarson
Besti íþróttafréttamaðurinn? Höddi Magg
EKKI besti íþróttafréttamaðurinn? það er einn þarna á RÚV sem er ekkert sérstakur
Hver er mesti höstlerinn í liðinu? Það eru flestir búnir að festa sig, en ungu strákarnir eru eitthvað að reyna
Hefurðu skorað sjálfsmark? Man það ekki, maður er fljótur að gleyma slíku
Segðu okkur frá skemmtilegu atviki sem gerst hefur í leik:
Við vorum að spila fyrir norðan á móti Þór og það gekk eitthvað illa, hinn pollrólegi bakvörður Freyr Bjarnason var eitthvað lengi í gangi og fyriliðinn Heimir Guðjónsson sá ástæðu til í að hrista aðeins uppí honum, Heimir sneri sér að honum og sagði "farðu nú að setja straum á þig drengur", þessi frasi hefur verið notaður óspart í Fimleikafélaginu síðan
Spilar þú Championship Manager tölvuleikinn? Nei, ekki lengur
Hvenar lékstu þinn fyrsta leik með meistaraflokki? 1996, á móti Víking, spilaði frammi með Hödda Magg, við unnum 1-0 og mig minnir að Davíð Óla (dvergurinn) hafi skorað sigurmarkið
Hvernig finnst þér Fótbolti.net? Fín síða, alltaf ferskar fréttir þar
Kíkir þú oft á Fótbolti.net? Alltaf þegar ég fer á netið
|