Amath André Diedhiou semur við FH. | |
|
FH hefur gert tveggja ára samning við Diedhou sem lék tvo leiki með FH í fotbolta.net mótinu í janúar. Diedhou kemur frá Senegal, en hefur leikið með liðum meðal annars í Moldavíu. FH er í æfingar ferð á Spáni og mun Diedhou leika með liðinu á æfingamóti núna næstu daga.
„Við erum mjög ánægðir með að fá Diedhou til okkar. Hann lék vel í tveim leikjum gegn Þrótti og Breiðablik í janúar. Hann mun styrkja FH-liðið og við væntum mikils af honum.“ Segir Heimir Guðjónsson þjálfari FH í samtali við www.FHingar.net |