Í kvöld kl. 19.15 mætir finnska liðið SJK í heimsókn í Krikann, en þetta er seinni leikur liðanna. FH sigraði eins og kunnugt er fyrri leik liðanna í Finnlandi fyrir viku síðan 1-0.
Nú er mikilvægt að allir FH-ingar sameinist og mæti á völlinn og styðji strákana til sigurs í þessum mikilvæga leik. Mafían hittist að venju kl. 16.00 á Ölhúsinu og eru allir FH-ingar velkomnir þangað fyrir leik, en Heiðar og DJ ultras munu halda uppi stemmningunni. Fimmtíu fyrstu sem mæta í FH treyju fá fríann bjór í boði knattspyrnudeildar FH.
Sigurliðið úr þessari viðureign mætir svo annaðhvort Laci frá Albaníu eða Inter Baku frá Aserbaidsan í annari umferð Evrópukeppninnar. Fyrri leikur þessara liða endaði 1-1, en seinni leikur liðanna í dag fer fram á heimavelli Inter Baku.