
| ÍBV | 36 |
| Breiðablik | 34 |
| FH | 32 |
| KR | 31 |
| Fram | 26 |
| Valur | 25 |
| Stjarnan | 24 |
| Keflavík | 24 |
| Grindavík | 19 |
| Fylkir | 18 |
| Selfoss | 14 |
| Haukar | 13 |
| Viðtal við Björn Daníel | |
|
|
Við höfðum samband við Björn Daníel en hann var kjörinn efnilegastur á lokahófi FH um daginn. Smellið á "lesa meira" til þessa að sjá hvað kappinn hafði að segja. Jæja Björn þú varst valinn efnilegastur um síðustu helgi, áttirðu von á því? Já í sjálfu sér átti ég alveg eins von á þvi þar sem ég spilaði mest af ungu strákunum og fannst ég spila nokkuð vel í sumar í þeim leikjum sem ég spilaði. Þetta var líka ánægjulegt þar sem ég hef ekki unnið nein einstaklingsverðlaun í rúm 3 ár og verðlaun hvetja mann alltaf til þess að gera betur.
Þú varst soldið inn og út úr liðinu í sumar, var það ekki svekkjandi? Já og nei. Auðvitað var það svekkelsi að detta út úr liðinu eftir að hafa skorað 2 mörk á móti Fjölni en það sem var eiginlega meira svekkjandi var að missa af nánast öllu undirbúningstímabilinu vegna meiðsla og þurfa nota hálft sumarið til að koma mér í form og svo loksins þegar ég er kominn i form og búinn að spila einhverja 6-7 leiki i röð þá meiðist ég aftur. En það er alltaf svekkjandi að vera ekki í liðinu en þegar þú spilar með jafngóðu liði og FH og ert ekki í 100% formi þá áttu alltaf í þeirri hættu að missa sætið þitt í liðinu.
Þú þurftir að velja á sínum tíma hvort þú ætlaðir að vera í handbolta eða fótbolta til frambúðar. Var það erfitt val? Já á þeim tíma var það erfitt val en núna er það eitthvað sem ég sé engan veginn eftir. Ég var nátturulega í liði sem tapaði ekki leik í mörg ár. Unnum einnig Partille Cup í Svíþjóð, annað Íslenska liðið til að vinna það held ég. Síðan var ég byrjaður að spila með meistaraflokki í handbolta áður en ég var einu sinni byrjaður að æfa með meistaraflokknum í fótbolta en einhvern veginn gat ég ekki hætt í fótboltanum. Síðan ákvað ég á yngsta ári í 2.flokki að æfa bara fótbolta allt sumarið og eftir það var aldrei spurning um það í hvorri íþróttinni ég myndi enda í.
Undirbýrðu þig á einhvern sérstakan hátt fyrir leiki? Nei reyndar ekki en reyni alltaf að borða hollt og ná góðum svefni. Svo er fínt að fá sér einn Burn orkudrykk ef maður byrjar inná ;).
Varstu sáttur með þitt sumar 2009? Já ég var nokkuð sáttur með mitt sumar þó svo að ég hafi lent í leiðinlegum meiðslum í vetur sem höfðu áhrif á byrjun sumarsins og að lenda síðan aftur i meiðslum í lokin. En mér fannst ég spila vel í þeim leikjum sem ég spilaði og skoraði þar að auki 4 mörk.
Hver eru þín markmið fyrir sumarið 2010? Að gera betur heldur en síðasta sumar. Æfa meira og betur og ætli ég verði ekki að lofa ykkur 5 mörkum fyrst ég skoraði fjögur í ár.
Þökkum Birni Daníel kærlega fyrir.
|