ÍBV36
Breiðablik34
FH32
KR31
Fram26
Valur25
Stjarnan24
Keflavík24
Grindavík19
Fylkir18
Selfoss14
Haukar13

Næsti leikur

Pepsi-deild karla
12.09.2010 17:30
FH vs Selfoss | Fáðu SMS
Kaplakrikavöllur

Síðasti Leikur

Pepsi-deild karla
KR 0 FH 1

Fótbolti.net

Viðtal við Gunnar Már
Árni Rúnar Karlsson    Þri, 29. september 2009   

Við heyrðum aðeins hljóðið í Gunnari Má, smellið á "lesa meira" til þess að sjá hvað Herra Fjölnir hafði að segja. 

 

 

Jæja Gunnar, hvernig finnst þér svo að vera kominn í FH eftir að hafa verið hjá Fjölni í allan þennan tíma?

Er kannski ekki alveg búinn að átta mig á því, en mér líst vel á þetta , að takast á við nýja áskorun er eitthvað sem ég þurfti að gera til að bæta mig sem leikmaður !


Spurðirðu Tomma Leifs,Heimir Snæ eða Grana eitthvað út í FH þegar þetta stóð til boða?

Þeir tala allir vel um FH og þeim leið vel þar , ég vissi það! Og svo spurði ég aðeins útí það sem ég var forvitinn um og hvort þetta væri ekki gott move hjá mér !


Hvernig kemur FH þér fyrir sjónir sem félag?

Í fáum orðum finnst mér FH heilsteyptur klúbbur með flotta umgjörð og mikinn metnað


Menn hafa oft verið hræddir við að ganga til liðs við FH vegna þess að samkeppnin er gríðarleg um sæti í liðinu. Það er ekkert sem hræðir þig?

Nei samkeppni er ekki eitthvað sem að hræðir mig, ég er þeirrar skoðunar að maður þurfi samkeppni til þess að verða betri leikmaður og það er eitt af því sem að ég sækist eftir í Hafnafirði !!


Voru fleiri lið á eftir þér?

Það voru nokkur lið á eftir mér en ég sagði stjórn Fjölnis að fyrst FH vildi fá mig þá vildi ég fá að ræða við þá fyrst og það var niðurstaðan ! Þannig að ég spáði ekki einu sinni í það hvaða fleiri lið vildu fá mig ! FH var fyrsti kostur.


Nú þekkirðu væntanlega leikkerfi FH eitthvað, hvaða staða í því leikkerfi hentar þér best að þínu mati?

Já undanfarin ár hefur Fjölnir verið að spila sama kerfi ,hef ég mest verið að spila fremstur á miðjunni einnig hef ég spilað djúpur á miðjunni í miðverði og sem senter ! ÉG hef alltaf kunnað vel við mig á miðjunni held að þar skili ég mestu fyrir liðið.


Einhver orð til stuðningsmanna FH?

Áfram FH

 

Þökkum Gunnari kærlega fyrir þetta og vonandi mun hann standa sig vel hjá Fimleikafélaginu.

 
 
Vefhönnun | Steinþór Kristinsson