ÍBV36
Breiðablik34
FH32
KR31
Fram26
Valur25
Stjarnan24
Keflavík24
Grindavík19
Fylkir18
Selfoss14
Haukar13

Næsti leikur

Pepsi-deild karla
12.09.2010 17:30
FH vs Selfoss | Fáðu SMS
Kaplakrikavöllur

Síðasti Leikur

Pepsi-deild karla
KR 0 FH 1

Fótbolti.net

Viðtal við Matta Villa
Árni Rúnar Karlsson    Sun, 30. ágúst 2009   

Heyrðum aðeins hljóðið í Matta Villa fyrir leikinn í kvöld gegn Þrótturum. Smellið á "lesa meira" til þess að sjá hvað Matti Villa hafði að segja.

Þú hefur verið í frábæru formi í sumar, er eitthvað sérstakt sem þú gerðir
til þess?

Eins og öll ár þá mæti ég í mjög góðu líkamlegu formi. Munurinn núna er kannski
sá að ég er reyndari og hef fengið að spila alveg frá upphafi tímabilsins. Ég
er þannig leikmaður að ef ég hef traustið þá spila ég mun betur!
 

FH hefur haft mikið forskot undanfarið í deildinni og hafa slæm úrslit gegn
KR og Grindavík litið dagsins ljós , hvað veldur?

Fyrst og fremst þá held ég að það sé hugarfarinu hjá okkur að kenna. Í þessum
leikjum höfum við einfaldlega ekki mætt til leiks og þegar leikmenn halda að
úrslitin komi sjálfkrafa þá er illt í efni. Sama hvað hver segir þá hafa
meiðslavandræði okkar í sumar verið fáránleg og á köflum hefur vantað hátt í 8
reynslumikla leikmenn. En það á að sjálfsögðu ekki að skipta máli fyrir klúbb
eins og FH og það skiptir engu þegar hugarfarið er rangt!
 

Leikur gegn Þrótti í kvöld, hvernig leggst það í þig og liðið?

Hann leggst mjög vel í mig og okkur alla og við erum staðráðnir í að bæta upp
fyrir slaka frammistöðu í seinasta leik. Ég vona bara persónulega að fólk sjái
sér fært að mæta og styðji okkur í þessum lokaátökum.


Veistu hvort það sé búinn að vera einhver áhugi erlendis frá á þér?

Af og til í sumar hef ég fengið að vita um áhuga hér og þar en það hefur ekkert
gerst ennþá þannig að ég er pollrólegur og einbeiti mér bara að því að því
klára dolluna með FH sem fyrst.
 

Þökkum Matta Villa kærlega fyrir og ÁFRAM FH

 
 
Vefhönnun | Steinþór Kristinsson