
| ÍBV | 36 |
| Breiðablik | 34 |
| FH | 32 |
| KR | 31 |
| Fram | 26 |
| Valur | 25 |
| Stjarnan | 24 |
| Keflavík | 24 |
| Grindavík | 19 |
| Fylkir | 18 |
| Selfoss | 14 |
| Haukar | 13 |
| Skoðun Hödda Magg á FH | |
|
|
Þórir Jónsson og Viðar Halldórsson ( og Gunna Bjarna). Ef ég byrja á Þóri .Þá gaf hann von lét öllum líða vel þó svo að viðkomandi væri ekkert tengdur FH. Hann stráði stjörnuryki á allt og alla. Hann gat látið öllum líða vel. Hann var minn lærifaðir. Ég hefði aldrei verið svona lengi í FH nema útaf honum. Ég hafnaði KR tvívegis þegar ég var upp á mitt besta. Sæi það varla gerast í dag. Þórir hafði aðdráttarafl sem erfitt er að útskýra. Andi hans lifir í FH í dag og sporgöngumenn hans hafa haldið honum á lofti. Jónsi, Pétur St og Lúlli ofl. Ég gæti skrifað heila bók um Þóri en læt staðar numið. Viðar Halldórsson er að mínu mati sá maður sem á ekki síst þátt í framgöngu FH . Maðurinn var formaður, þjálfari, fyrirliði og landsliðsmaður nánast um leið og hann kom í þennan heim. Mér finnst alltaf skondið þegar menn eru að velja besta FH lið allra tíma og gleyma Vidda. Hann var frábær leikmaður og ruddi brautina fyrir okkur nokkra og sýndi að það var hægt að vera landsliðsmaður án þess að vera í Val, Fram,KR eða ÍA. Hann sýndi mönnum fram á að allt væri hægt þrátt fyrir að vera í sveitaklúbb eins og FH. Ég verð að minnast á Gunnu Bjarna, eiginkonu Vidda. Gunna er og var yndisleg manneskja sem fórnaði öllum sínum aukatíma fyir félagið. Hún vann á sínum upp á Krika í gamla skúrnum og gerði það með þvílíkum myndarskap að annað eins hefur ekki sést. Hún er og var ein af þeim sem unnið hefur vanþakklát starf fyrir klúbbinn. Það er ekki hægt annað í lokin að nefna Óla Jó. Hann er ótrúlegur eitt orð yfir það. Hann gaf mér tækifæri. Óli Jó er það sem FH stendur fyrir. Heiðarlegt og gott. Hvernig sérðu framtíðina? Framtíðin er björt en menn þurfa að halda vöku sinni og gleyma ekki upprunanum. Við erum og verðum ávallt sveitaklúbbur. Forráðamenn félagsins verða að halda á lofti mönnum eins og Árna Ágústar ofl. Ekki gleyma fyrsta Evrópuliði félagins gegn Dundee United. Snjó, sól og rigningu. Hvernig finnst þér FH liðið í dag? Frábært, ótrúlegir piltar. Verð að taka Atla Guðna og Davíð Þór út úr þessu. Þvílíkir leiðtogar hvor á sinn hátt. Þeir halda félaginu á lofti ásamt þjálfaranum og öllum leikmönnum meistaraflokks. Verð að minnast í lokin á Steinar Stephensen. Þó svo að hann haldi að halda! með Man U þá hæfir það ekki hans ótrúlegu fórnfýsi og baráttuhug. Við á Fhingar.net þökkum Hödda Magg kærlega fyrir þetta. |