|
Anton Ingi tekur við ritstjórastöðunni |
|
fhingar@fhingar.net
Fim, 14. janúar 2010 |
|
|
Fhingar.net hefur ráðið nýjan ritstjóra, en Anton Ingi Leifsson tekur við starfinu af Jónas Ými Jónassyni sem snýr sér alfarið að tæknihliðinni. Árni Rúnar Karlsson, Jónas Ýmir Jónasson, Árni Freyr Helgason, Guðlaugur Valgeirsson og Steinþór Kristinsson verða Antoni innan handar. Anton starfaði um árabil hjá Gras.is - en þurfti að víkja þegar Stöð 2 Sport lagði niður síðuna og starfar nú hjá hinni margfræknu Sport.is við góðan orðstír.
FHingar.net er nú í óða önn að bæta alls kyns tækniatriði og fleira fyrir næsta sumarið, en næsta sumar ætlum við að krydda upp á nokkrum nýjungum. Við ætlum að halda áfram með lýsingar okkar frá heimaleikjum FH í karlaflokki og að auki ætlum við að reyna að lýsa útileikjum líka líkt og heimaleikjum hjá kvennaliðinu sem tryggðu sér eins og flestir vita sæti í Pepsí-deildinni með fræknum sigri á ÍBV í Eyjum. Að auki verður Fhingar.net með alls kyns uppákomur og ætlum við að reyna að komast á skrið með síðuna sem fyrst.
|