|
Tryggi kveður |
|
Árni Rúnar Karlsson
Fös, 23. október 2009 |
|
|
Við hjá FHingar.net settum okkur í samband við Tryggva vegna brottför hanns frá FH. Einnig viljum við nýta tækifærið og þakka honum enn og aftur fyrir tímann hjá FH.
Hvað kom til að þú endar í ÍBV? ÍBV sýndi mér mikinn áhuga og það eru spennandi tímar framundan. Það hefur blundað í mér að koma heim til Eyja og klára þar og nú er komið að því. Mér er ætlað lykilhlutverk í sóknarleik liðsins og ég er maður áskorana.
Var þetta langur aðdragandi? Aðdragandinn var ekki mjög langur í þessu ferli en ÍBV hefur reyndar viljað fá mig áður án árangurs og þeir gáfust ekki upp. Ekta Eyjakarakter :-)
Þú varst orðaður við litlu systir FH, Hauka og að verða aðstoðarþjálfari þar? Haukarnir settu sig í samband við FH en fengu ekki leyfi til að tala við mig. Þar með var það úr sögunni.
Gegnir þú einhverri þjálfarastöðu hjá ÍBV? Ég mun ekki gegna þjálfarastöðu hjá ÍBV en það er ljóst að Heimir ætlar sér að nýta reynslu mína. Ég mun örugglega vera með einhverjar aukaæfingar fyrir sóknarmenn. Skot, fyrirgjafir og allt það stöff. Með reynslu og réttindi og því um að gera að nýta sér það.
Eyjmenn hafa fengið Ásgeir Aron frá Fjölni, þig frá stórveldinu FH og svo skrifaði Andri undur nýjan samning. Greinilega metnaður í Eyjum? Það er mikill metnaður í Eyjum og þetta er bara rétt að byrja :-) Þetta minnir óneitanlega á þann tíma þegar ég kom aftur til ÍBV frá KR 1995 (nema þá var ég með aðins meira hár). Þá byrjuðu yndilsegir tímar og árin 1995, 1996 og 1997 voru hreint út sagt frábærir. Við erum vonandi að fara að upplifa það aftur.
Munt þú flytja til Eyja? Ég mun vera út í Eyjum yfir sumartímann en þó mun ég einnig vera mikið í Reykjavík. Fjölskyldan verður í Reykjavík og því mun ég vera mikið á flakkinu. Ekkert mál, bý rétt hjá Reykjarvíkurflugvelli :-)
Þú áttir frábær 5 ár hjá FH, eitthvað sem stendur uppúr? Ég átti frábær ár með FH það er engin spurning og það er ekki auðvelt að kveðja ykkur! Það sem stendur upp úr er kannski sumarið 2005. Fyrsta árið mitt með FH og það endaði með titli og gullskó. Eins var ég afar sáttur með árið í fyrra (2008). Þar náði ég mér vel á strik, bronsskór og lang flestar stoðsendingar leikmanna deildarinnar það árið. Svo eru auðvitað strákar sem að maður gleymir aldrei eins og Daði Lár, Auddi Hegg, Matti Villa, Björn Daníel,Sverrir Garðars, Freysi Bjarna, Gummi Sæ, Dabbi Vidd og fl. sem var frábært að kynnast og spila með. Eins var frábært að upplifa stemninguna með ykkur á pöllunum í lokaleiknum gegn Fylki 2008. Það var fjör!!
Þú skilur í góðu við FH er það ekki? Ég skil í góðu við FH, engin spurning. Ég vil einmitt þakka stjórn og þjálfurum fyrir hve fagmannlega var að þessu staðið. Ég fór fram á að þetta yrði að veruleika og þeir voru að sjálfsögðu ekki að koma í veg fyrir það.
Hvernig sérðu FH fyrir þér án TG? FH verður klárlega yngra án mín og Daða Lár, það er ljóst :-) En það eru góðir strákar að koma upp og FH verður áfram í röð þeirra bestu næstu árin, engin spurning.
Einhver lokaorð til stuðningsmanna? Ég vil nota tækifærið og þakka öllum stuðningsmönnum FH fyrir frábæra tíma. Þið höfðuð allan tímann trú á mér og met ég það mikils. Ég vona að ég hafi gefið eitthvað til baka og vænti þess að lagið mitt hljómi í Krikanum áfram á næstu árum. Enda alger slagari hér á ferð :-) Eins vona ég að Ari hugsi vel um alla þessa gullskó sem ég er búinn að gefa honum í gegnum árin :-)
Áfram við!!
|