
| Fram | 9 |
| FH | 6 |
| Selfoss | 6 |
| Víkingur R. | 3 |
| Valur | 3 |
| Fjölnir | 3 |
| Leiknir R. | 0 |
| KA | 0 |
| Mfl kvk ÍBV - FH: bein textalýsing | |
|
|
Heimildamaður hafði þetta að segja: "þær fagna núna eins og vistmenn á kleppi hafi losnað úr spennitreyjuminna helst á vistmennina úr gaukshreiðrinu ....." FH hafa sigrað á útivallarmörkum 2-2 og munu þær spila í Pepsi deildinni næsta sumar, frábær árangur hjá stelpunum og þjálfurunumJón Þóri Brandssyni og Örnu Steinsen. FH hafa jafnað, 2 mínútur eru komnar fram yfir venjulegan leiktíma en markið skoraði varamaðurinn Elísabet Guðmundsdóttir, en hún er einungis 16 ára gömul. Pepsi deildin er í augsýn!!!! Ýtið á meira til að sjá fyrstu mín ÍBV virka stressaðar og halda boltanum illa. FH liðið á leikinn eftir markið og voru þær að gera skiptingu, útaf fór Sigrún Ella Einarsdóttir og inná kom Guðrún Björg Eggertsdóttir, 9 mínútur eftir, koma svo FH. FH eru með vindinn í bakið í seinni hálfleik sem ætti að hjálpa þeim mikið en heyrst hefur að það sé mikill vindur í Eyjum. FH eru búnar að minnka muninn!!!!! Hanna Gústavsdóttir gerði það og var það 16.markið hennar í sumar ef mér skjátlast ekki, en markið kom á 57.mínútu, eftir hornspyrnu og eygja stelpurnar von. Staðan orðin 2-0 fyrir ÍBV. Róðurinn er orðinn þungur fyrir FH og þurfa þær að fara spila betur ef þær ætla sér upp um deild. Það er kominn hálfleikur í Eyjum og er staðan 1-0 fyrir ÍBV. Stelpurnar þurfa þrátt fyrir það bara eitt mark og skulum við vona að þær geri það ! 40 mínútur eru liðnar, ÍBV voru að eiga annað skot í slá en aðstæður á vellinum eru erfiðar því það er rigning, vindur og völlurinn því mjög blautur. FH eru lentar undir eftir 28 mín en það var Berglind Arnardóttir fyrirliði FH sem skoraði sjálfsmark, 1-0 fyrir ÍBV en nú þarf FH að skora. Eftir korter eru ÍBV búnar að vera betri, með meðal annars skot í slá en staðan er enn 0-0. Því miður höfum við ekki byrjunarliðið á hreinu. Muna að refresha á 5 minútna fresti. Hér mun koma bein textalýsing, um leið og við heyrum frá okkar manni í eyjum látum við það beint inn hingað en það eru mörk, rauð spjöld og hættuleg færi. Fylgist með ÁFRAM FH!!!! |