ÍBV36
Breiðablik34
FH32
KR31
Fram26
Valur25
Stjarnan24
Keflavík24
Grindavík19
Fylkir18
Selfoss14
Haukar13

Næsti leikur

Pepsi-deild karla
12.09.2010 17:30
FH vs Selfoss | Fáðu SMS
Kaplakrikavöllur

Síðasti Leikur

Pepsi-deild karla
KR 0 FH 1

Fótbolti.net

Hafliði Breiðfjörð
fhingar@fhingar.net    Mið, 17. nóvember 2004   
Hafliði Breiðfjörð
FH-ingurinn er Hafliði Breiðfjörð. Hafliði er trúlega einna þekktastur fyrir að vera aðalsprautan á bak við einn albesta fótboltavef á landinu, fótbolta.net.

Hafliði, lengst til vinstri. Strumpastrætóinn í baksýn.

1) Af hverju FH?
Þetta fylgir því náttúrulega að vera Hafnfirðingur. Það kom aldrei neitt annað til greina en FH enda hefur verið FH merki á stofuveggnum heima frá því ég var pínulítill.  Ég man meira eftir handboltaleikjunum enda hefur fjölskyldan unnið mikið fyrir FH frá því ég var lítill en hef alltaf mætt eitthvað á fótboltaleikina og nánast alla fótboltaleiki FH síðan árið 2000. Ég æfði handbolta með FH á yngri árum þó árangurinn hafi ekki verið góður. Lengst undir stjórn Óla Kristjáns sem í dag þjálfar Fram í fótboltanum.  Þegar verið var að klára íþróttahúsið við Kaplakrika 1990 held ég að ég hafi verið meira í Kaplakrikanum en heima. Á þeim árum sáu foreldrar mínir um rekstur sjoppunnar á handboltaleikjunum og pabbi var í stjórn handknattleiksdeildar og við bræðurnir vorum mikið þarna að hjálpa til. Foreldrarnir voru einmitt að taka við rekstri Sjónarhóls nú í haust.


2) Segðu okkur frá fyrstu ferðinni á FH-leik sem þú manst eftir.
Fyrst þegar ég sá FH spila stóð Börkur  framan á búningunum og varabúningarnir voru ljósbláir. Í liðinu þá voru gamlar stjörnur eins og bræðurnir Halldór og Viðar Halldórssynir sem alltaf var gaman að horfa á. Í stúkunni voru margir sem enn sækja FH leiki, sumir sem manni þótti alltaf skrautlegir í stúkunni.


3) Segðu okkur frá eftirminnilegum leik.
Eftirminnilegasti leikurinn er síðasti deildarleikur FH, 19. september 2004. Ég hafði haft það á tilfinningunni frá því dregið var í mótið að þessi leikur á Akureyri gæti orðið leikurinn sem FH tryggði sér Íslandsmeistaratitil í fyrsta sinn. Við fórum 8 saman í grænum strumpastrætó norður á laugardeginum en stoppuðum fyrst í Ártúninu til að merkja bílinn með stórum sérútbúnum FH límmiðum sem ég lét útbúa og fánum. Svo var haldið norður. Vöknuðum snemma á sunnudagsmorgun og tókum rúnt, keyrðum meðal annars framhjá FH liðinu sem var á röltinu og var greinilega að fíla græna strumastrætóinn og allir veifuðu til okkar. Ég hef aldrei upplifað aðra eins stemmningu og á Akureyri þennan dag og leyfi mér að trúa að aldrei hafi annað eins orðið á Íslandi. Um tveimur tímum fyrir leik var Ali Sportbar troðfullur af FH-ingum sem sungu hástöfum. Það var vonlaust að tala saman því FH söngvarnir yfirgnæfðu allt. Klukkutíma fyrir leik fórum við svo á völlinn þar sem sama stemmning hélt áfram, allir sungu með. FH vann leikinn 2-1 en þegar Ásgeir skoraði sigurmarkið undir lok leiks, þá fyrst, trúði ég að þetta væri virkilega að gerast, FH varð Íslandsmeistari. Eftir tæpa 3 tíma syngjandi í stúkunni var svo farið suður á ný þar sem við höfðum haft spurnir af því að verið væri að undirbúa heimkomupartí og flugeldasýningu og rétt náðum þangað til að ljúka kvöldinu í Krikanum ásamt fjölda FH-inga, þessi leikur er sá eftirminnilegasti sem ég hef nokkurn tíma farið á.


4) Hver er uppáhaldsleikmaður þinn og hvers vegna? (Núna? En í gegnum tíðina?)
Í dag eru of margir skemmtikraftar í FH liðinu til að taka einhvern einn útúr. Í sumar fannst mér Gummi Sævars frábær og verðskuldaði vel valið í landsliðið. Emil sýndi rosalega skemmtilega takta og Jónsi er alltaf skemmtilegur. Ég gæti haldið svona áfram og talið upp allt liðið. Ég ætla að fara stutt aftur til að nefna leikmann í gegnum tíðina því ég hef alltaf saknað Hilmars Björnssonar eftir að hann fór frá okkur.


5) Hvert er eftirminnilegasta markið sem skorað hefur verið í Krikanum?
Erfitt að muna eitt stakt mark en verð í staðinn að velja 7 mörk sem voru skoruð í sama leiknum gegn Íslandsmeisturum KR í lokaumferðinni 2003.  Það mun enginn FH-ingur gleyma þessum úrslitum, aldrei.


6) Hver hefur verið besta stundin sem FH aðdáandi? En sú versta?
Besta stundin var á Akureyrarvelli 19. september síðastliðinn eins og lýst er að ofan. Versta stundin eru tveir leikir gegn Fylki, 1989 þegar við rétt misstum Íslandsmeistaratitilinn frá okkur eftir tap gegn föllnu liði Fylkis og svo nokkrum árum síðar er FH-ingar fögnuðu því að vera komnir í efstu deild eftir markalaust jafntefli gegn Fylki, í miðjum fagnaðarlátunum kom svo í ljós að við vorum ekkert komnir upp og ég man að þegar það kom í ljós var verið að trollera Pétur Ormslev þjálfara, ég læddist úr vinnunni til að sjá síðasta hálftímann og það var mjög erfitt að sætta sig við að það sem varð... varð ekki.


7) Hvaða leikmann viltu sjá í FH treyju? Og hvern viltu alls ekki sjá í FH treyju?
Eins og staðan er í dag og ef maður á að hugsa raunhæft þá er ég á því að með því að fá Veigar Pál Gunnarsson verði FH algjörlega óstöðvandi. Hann er kannski að verða á lausu og vonandi að ef svo verður tryggi FH sér hann enda er hann nú Hafnfirðingur að upplagi og á að spila í Hafnarfirði.

8) Hverjir eru verstu andstæðingar FH að þínu mati?
Nú myndu margir segja KR, en KR eru í raun bestu andstæðingar FH, við eigum svo auðvelt með þá. Verstu andstæðingarnir eru hinsvegar Fylkismennirnir, þeir skemmdu fyrir okkur titilinn ´89, þeir lokuðu markinu '98 þegar við áttum að fara upp og okkur hefur gengið mjög illa með þá í gegnum árin. Ég á marga vini sem styðja Fylki og fer oft með þeim á leiki FH og Fylkis. Þangað til á Kaplakrikanum í sumar hafði það alltaf verið ég sem fór fúll heim eftir sigur Fylkis, það breyttist hinsvegar loksins í sumar í leiknum sem kannski var lykilatriðið í Íslandsmeistartitlinum.


9) Hverju myndir þú breyta hjá FH?
Það er erfitt að segja, við erum með frábært lið, frábæra stuðningsmenn og þeir sem stjórna öllu batteríinu virðast vera að gera góða hluti. Það er hinsvegar eitt sem hefur alltaf pirrað mig svolítið en það er hvernig stuðningsmenn tvístrast í Kaplakrikanum og stemningin verður aldrei sú sama og á útivöllum. Þetta þarf að laga. Persónulega finnst mér skemmtilegra að horfa á leiki úr tröppunum en reyni að fara meira í stúkuna því þar myndast stemmningin.


10) Hvernig myndir þú stilla upp liði ef þú gætir valið úr öllum leikmönnum FH fyrr og síðar?
Ég get ekki valið þetta. Mér finnst alltaf lið dagsins í dag vera besta liðið enda lið á framabraut.


11) Hvaða liði heldur þú með úti í hinum stóra heimi?
Ég held með Liverpool í Englandi og hef í raun enga skoðun á liðum í öðrum löndum. Ef ég yrði hinsvegar að velja á milli þá er ég miklu meiri FH-ingur en Púllari.


12) Hvar sérðu FH fyrir þér eftir 10 ár?
Í riðlakeppni Meistaradeildarinnar, þetta gæti nú annars vel gerst á næsta ári.

 
 
Vefhönnun | Steinþór Kristinsson