Mán 28.júl 2008 Þessi frétt hefur verið skoðuð 233 sinnum.
Landsbankadeildin: 13. umferð: ÍA 2-5 FH, umfjöllun
FH gerði góða ferð upp á Akranes í gærkvöldi þar sem að heimamenn í ÍA voru lagðir af velli mjög sannfærandi 2-5. Blíðskaparveður var á skaganum og virtist það hafa góð áhrif á okkar menn sem og stuðningsmenn sem áttu frábæran dag og sýndu margar af sínum bestu hliðum. Með sigrinum komst FH á toppinn á nýjan leik, um stundarsakir að minnsta kosti.
Tvær breytingar voru gerðar á byrjunarliði FH frá sigurleiknum gegn HK en inn í liðið komu þeir Björn Daníel Sverrisson og Matthías Vilhjálmsson í stað þeirra Dennis Siim sem er smávægilega meiddur og Arnars Gunnlaugssonar sem er eins og alþjóð veit tekinn við ÍA liðinu ásamt bróður sínum Bjarka.
Liðið var annars skipað eftirfarandi leikmönnum:
Gunnar Sigurðsson
Höskuldur Eiríksson – Ásgeir Gunnar Ásgeirsson – Tommy Nielsen - Logi Valgarðsson
Björn Daníel Sverrisson – Davíð Þór Viðarsson - Matthías Vilhjálmsson
Atli Guðnason – Atli Viðar Björnsson – Tryggvi Guðmundsson
Á bekknum voru síðan þeir Daði Lárusson, Birkir H. Sverrisson, Jónas Grani Garðarsson, Matthías Guðmundsson, Hákon Hallfreðsson og Guðmundur Sævarsson.
Það var ljóst frá fyrstu mínútu hvert stefndi en FH tók völdin strax í byrjun og hóf stórskotaárás að marki skagamanna sem voru í mestu vandræðum með að halda boltanum sín á milli. Innkoma þeirra Björns Daníels og Matta Vill varð til þess að aukinn hraði komst í spilið og var sá síðarnefndi sennilega besti maður vallarins í gær en annars var allt liðið að spila glimrandi bolta og hver og einn var að skila sínu hlutverki af stakri prýði.
Fyrsta mark leiksins kom á 16. mínútu eftir aukaspyrnu frá hægri. Boltinn barst inn í teiginn þar sem að Matti Vill var mættur og skallaði í netið. Tveimur mínútum síðar átti Matti að skora aftur þegar hann fékk sannkallað dauðafæri eftir glæsilega sendingu frá Atla Guðna en hann skallaði boltann í jörðina og yfir markið. Á 25 mínútu átti Atli Viðar síðan hörkuskot rétt yfir eftir frábæra sókn en margar slíkar fengu að líta dagsins ljós í fyrri hálfleik og hefðu FH auðveldlega getað verið komnir í 3 eða 4-0 eftir fyrsta hálftímann. Atli Guðna fékk síðan fínt færi eftir rúmlega hálftíma leik þegar hann komst nokkurn veginn einn í gegn eftir snögga aukaspyrnu frá Tryggva en skot hans var slakt og beint á hinn unga markvörð skagamanna sem átti fínan leik og bjargaði liðinu oft á tíðum mjög vel.
Í raun var FH í látlausri sókn allan fyrri hálfleikinn og á 33. mínútu kom annað markið. Eftir sókn upp hægri kantinn barst boltinn á Atla Guðna sem að átti nokkurs konar skot eða fyrirgjöf meðfram jörðinni sem endaði í netinu og má kannski setja spurningamerki við markvörð skagamanna í markinu en hugsanlega höfðu klókindi Atla einhver áhrif.
Fimm mínútum síðar náðu heimamenn að minnka muninn. Svo virtist sem að brotið væri á leikmanni FH inn vallarhelmingi skagamanna en ekkert var dæmt. Boltinn barst síðan inn fyrir vörn FH og þar var Björn Bergmann allt í einu einn og óvaldaður og skoraði fram hjá Gunna í markinu. Mikil óánægja var meðal leikmanna FH með að markið skyldi standa en þeir vildu fá aukaspyrnu og einnig var spurning um hvort að Björn hafi verið rangstæður en markið stóð.
Þetta mark hafði hins vegar ekki mikil áhrif á FH liðið því þeir voru ekki lengi að ná tveggja marka forystu á nýjan leik tveimur mínútum síðar. Eftir flotta stungusendingu frá Tryggva komst Matti Vill einn í gegn en brotið var á honum og umsvifalaust dæmd vítaspyrna. Skagamaðurinn fékk réttilega rauða spjaldið og Tryggvi fór á punktinn og skoraði af miklu öryggi.
FH liðið var hvergi hætt og hélt sóknarþunganum áfram seinustu mínútur hálfleiksins og á 43. mínútu átti Atli Viðar fínan skalla rétt yfir markið. Ekki voru þó fleiri mörk skoruð í hálfleiknum og staðan í hálfleik því 1-3 fyrir okkar mönnum.
Síðari hálfleikurinn hófst af sama krafti hjá FH og hélt liðið áfram sömu yfirburðum á vellinum og ekki þurfti að bíða lengi eftir næsta marki. Á 49. mínútu eftir glæsilega sókn stakk Matti Vill boltanum inn fyrir á Tryggva sem átti ekki í neinum vandræðum með að skora en þetta var fjórða mark hans í tveimur leikjum og ljóst að kallinn er kominn í gang á nýjan leik eftir örlitla lægð. Þremur mínútum síðar gerði FH síðan breytingu en Höski fór þá út af fyrir Gumma Sæv. Reyndar bað Höski um skiptingu en hann hafði orðið fyrir smávægilegum meiðslum í fyrri hálfleik.
Á 54. mínútu var Atli Guðna hársbreidd frá því að skora sitt annað mark eftir laglegt samspil en þrumuskot hans var varið glæsilega af markverði skagamanna en boltinn stefndi upp í bláhornið vinstra megin. Átta mínútum síðar kom síðan fimmta markið.
Efir hornspyrnu og fína sókn átti Logi loks frábæra sendingu inn í teig frá vinstri þar sem að Ásgeir var mættur og skallaði hann laglega í netið. Þetta var fyrsta mark Ásgeirs í sumar sem átti sinn langbesta leik í sumar.
Þremur mínútum síðar var Tommy síðan rekinn af velli eftir viðskipti sín við Stefán Þórðarson inn í vítateig FH. Eitthvað varð Tommy ósáttur við grófan leik Stefáns, sem hafði skömmu áður fengið spjald fyrir að keyra í Gunna markvörð, og virtist sem hann ýtti við honum. Stefán lá sem særður björn í grasinu og Tommy fékk reisupassann. Erfitt er að mótmæla spjaldinu sem slíku og þetta var algjör óþarfi hjá Tommy en viðbrögð Stefáns voru frekar sorgleg.
Á 68. mínútu náði ÍA að minnka muninn eftir stungusendingu, ekki ósvipaðri og í fyrra marki þeirra en hugsanlega hefði FH vörnin getað gert betur og komið í veg fyrir markið.
Breyting var gerð á liðinu á 76. mínútu en þá fór Tryggvi út af fyrir Matta Guðmundss. Leikurinn datt aðeins niður eftir að Tommy var rekinn út af og lítið af færum leit dagsins ljós það sem eftir lifði leiks. Á 82. mínútu fór Matti Vill síðan út af fyrir Grana. Seinasta hættulega færi leiksins átti síðan Logi á lokamínútum leiksins eftir fína sókn en skot hans með hægri var vel verið og Atli Guðna náði síðan ekki að fylgja vel eftir.
Skömmu síðar gall síðan lokaflautið og 2-5 sigur staðreynd í leik sem var frábærlega leikinn af hálfu FH á löngum köflum. Liðið virðist hafa fundið hungrið og neistann á nýjan leik og innkoma þeirra Matta V. og Bjössa hafði góð áhrif en annars er erfitt að taka einn út þegar að liðið er að spila vel, þetta er nú sigur heildarinnar og sú var raunin í þessum leik. Að lokum má ekki gleyma þætti Mafíunnar en hún var frábær í gær og virðist styrkjast með hverjum leik.
Næsti leikur er síðan í Evrópukeppninni á móti Grevenmachen en leikið er í Lúxemborg. Í deildinni er hins vegar ekki leikið fyrr en 6. ágúst næst en þá koma Þróttar í heimsókn í Kaplakrika en sá leikur hefst kl. 19:15.
Sjáumst þá!
Kveðja
Ritstjórn
|
|
|
|
<< Eldri frétt Nýrri frétt >>
|
|
| Staðan |
| Sæti |
Félag |
Stig |
|
| 1. |
FH |
28 |
| 2. |
Keflavík |
26 |
| 3. |
Valur |
23 |
| 4. |
Breiðablik |
21 |
| 5. |
Fjölnir |
21 |
| 6. |
KR |
18 |
| 7. |
Fram |
18 |
| 8. |
Grindavík |
17 |
| 9. |
Þróttur |
16 |
| 10. |
Fylkir |
12 |
| 11. |
ÍA |
7 |
| 12. |
HK |
5 |
|
|
| Markahæstir |
| Tryggvi Guðmundsson |
8 |
| Atli Viðar Björnsson |
7 |
| Arnar Gunnlaugsson |
4 |
|
| Síðustu leikir |
|
| Síðasti leikur |
UEFA Cup
1. umferð
Grevenmacher - FH
|
|
1 - 5
|
| 31. júlí |
18.00
|
| XxXxX |
|
| Næsti leikur |
Landsbankadeildin
14. umferð
|
|
FH - Þróttur
|
|
| 6. ágúst |
19.15
|
| Kaplakrikavöllur |
|
|
|
|